Færsluflokkur: Menning og listir

Pétur Pan á Barnaspítala hringsins

Nói Páll, strákurinn minn, vaknaði í gær með mikla öndunarörðugleika. Þetta var býsna hrikalegt og hljóðin frá honum ekki þæginleg.
Við Bjarki fórum með hann á Barnasp um 11:30 í gærkvöldi. Við fengum svo ofboðslega góða þjónustu og yndislegir læknarnir sem tóku á móti okkur. Við erum að tala um yfirbarnalæknir þarna sem var eins og Pétur Pan / Patch Adam eða eitthvað álíka!! Ótrúlegt hvernig hann var í viðmóti. Hann var með galdrastaf í vasanum sem var ótrúlega skemmtilegur (glit og alls konar skraut sem hreyfðist í bláum og glærum vökva) og svo blés hann sápukúlur á meðan annar læknir var að hlusta Nóa Pál. Þetta virkaði auðvitað því þarna gat hann náð að hafa áhrif á hversu ört hann andaði. Þetta skiptir gríðarlegu máli þegar fólk er í ástandi og auðvitað hrætt, að læknirinn sé verndarinn þeirra. Við vorum roslaega ánægð og Nóa líður nú vel. þarf að vera heima í 2-3 daga, er með smá hita og hálsóþægindi. Fengum steratöflur, vatnsleysanlegar, sem hann tekur næstu 2 daga til að minnka bólgurnar í hálsinum.

Takk takk fyrir meiriháttar framlag..svo er alltaf verið að reyna minnka mannaflið á þessum spítölum og þá auka álagið á þá fáu sem eftir standa...og takmarka peningana sem renna til þessarra stofnanna??

« Fyrri síða

Um bloggið

Pensillinn

Höfundur

Sandra María Sigurðardóttir
Sandra María Sigurðardóttir
Ég er 33 ára listmálari. Lifi og hrærist í Reykjavíkinni, fædd og uppalinn í Seyðisfirði. Er 1/4 færeyingur sem hefur sannarlega áhrif á útkomuna. Ég var dreymandi og afskaplega utan við mig sem barn, alltaf að smíða og búa til hluti, horfa á stjörnurnar og búa til ljóð. Ég sé í dag hvað það er gott að hafa fengið sérstakt uppeldi. Þarf ég að laga það ef það getur nýst mér?
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • headbang
  • ...untitled
  • Dragonfruit
  • Ananas
  • Bananapipar / Bananapepper

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 891

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband